Veislusalur til leigu
Í Víkinni er bjartur, rúmgóður og snyrtilegur hátíðarsalur sem tekur 80-100 manns í sæti og er upplagður fyrir fund, fermingaveislu, brúðkaupsveislu, afmælifagnað eða erfidrykkju. Veitingaaðstaða er fyrir hendi í salnum og einnig er fyrir hendi pallur sem nota má undir litla hljómsveit, skífuþeitara eða ræðumenn. Salurinn er útbúinn með myndvarpa og hljóðkerfi.

Nánari upplýsingar um útleigu eru veittar í síma 581 3245 eða með tölvupósti eirikur@vikingur.is

Hátíðarsalurinn skreyttur í tilefni af kvennakvöldi Víkings í mars 2009
   
 Afmælisveisla í Víkinni.  Hér er undirbúningi lokið og gestirnir á leiðinni.
   
Hátíðlegt er í hátíðarsalnum þegar efni standa til! Hér er Ingunn Helgadóttir - Systa - við hlaðið og glæsilegt Taco Bell-veisluborð sem hún annaðist fyrir Víking á uppskeruhátíð knattspyrnudeildar haustið 2008. Góða veislu gjöra skal í notalegu umhverfi. Knattspyrnukonur úr HK-Víkingi á uppskeruhátíðinni. Í hátíðarsal Víkings hefur verið fagnað stórafmælum, fermingum,brúðkaupum og margvíslegum öðrum merkum áföngum.