Íþrótta- og sumarskóli Borðtennisdeildar Víkings verður starfræktur í sumar í TBR – Íþróttahúsinu (borðtennissalur), Gnoðarvogi 1, 104 Reykjavík fyrir 7-14 ára börn og unglinga. Fjölbreytt Íþróttakennsla er á dagskrá með áherslu á borðtennis.
Guðmundur Stephensen úr Víkingi varð Íslandsmeistari í einliðaleik í borðtennis í 20. sinn en hann var aðeins 11 ára þegar fyrsti titillinn kom í hús árið 1994. Eva Jósteinsdóttir úr Víkingi vann í einliðaleik kvenna.
Víkingur varð í gærkvöldi Íslandsmeistari í 1. deild kvenna eftir góðan sigur á liði KR-inga í úrslitaleik 3 – 0. Lið Íslandsmeistara Víkings er skipað þeim Evu Jósteinsdóttur, Lilju Rós Jóhannesdóttur og Eyrúnu Elíasdóttur.
Lið Víkings varð Íslandsmeistari laugardaginn 21. apríl eftir mjög góðan sigur á liði KR í úrslitaleik 4 – 0. Lið Víkings hafði sigraði heimaleikinn sem fór fram 16. apríl 4 – 2 og síðan útileikinn 4 - 0 í ljónagryfju KR-inga í Frostaskjóli sem fór fram sl. laugardag 21. apríl.
Coca Cola Stigamótið í borðtennis fór framí Íþróttahúsi TBR laugardaginn 17. mars 2012. Í Meistaraflokki karla léku til úrslita Daði Freyr GuðmundssonVíkingi gegn Davíð Teitssyni Víkingi. Leikar fóru þannigað Daði Freyr sigraði 3 – 1 (8 – 11, 11 – 4, 11 – 9 og 11- 6)Í Meistaraflokki kvenna sigraði síðan Magnea Ólafs VíkingiKolfinnu Bjarnadóttur HK í úrslitum 3 – 0