fristundakortimage002

Arion banka mót Víkings

arionbankamot

Arion banka mótið í fótbolta verður haldið í þriðja sinn helgina 17.-18. ágúst 2013 í Víkinni í Fossvogi . Stemningin var frábær 2012 og voru keppendur hátt í 1.200 talsins.

Mótið í ár er fyrir upprennandi fótboltastjörnur, stelpur og stráka, í 6. 7. og 8. flokki í knattspyrnu. Allir flokkar verða með 5. leikmenn inn á í hverju liði. Gert er ráð fyrir því að hvert lið sé 3 klst. á svæðinu að spili 4. til 5. leiki, engin úrslit eru skráð heldur taka allir þátttakendur á móti verðlaunapening og gæða sér á gómsætis hamborgarmáltíð frá Grillhúsi Andabæjar ásamt því fá glæsilegan Disney glaðning frá Arion banka.

Nánari upplýsingar um skipulag mótsins og skráning hjá Ólafi Ólafssyni Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , íþróttastjóra Víkings, sími 5813245.

Líkt og í fyrra munum við bjóða íþróttafélögum af landsbyggðinni að sækja um samgöngustyrk til þátttöku í mótinu.

Nánari upplýsingar um samgöngustyrk veitir Arion banki Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

 

 

 

 

VIDEÓ FRÁ MÓTINU 2012

MYNDIR FRÁ MÓTINU 2012 


16.8. 2012 Mótsskráin komin

Mótsskráin fyrir bæði 7. og 8. flokk er komin og er í viðhengi hér að neðan. Gert er ráð fyrir því að hver lið sé 3 klst. á svæðinu að spila sína leiki, taka á móti verðlaunapening og gæða sér á gómsætis hamborgarmáltíð frá Grillhúsi Andabæjar. Allir þátttakendur verða auk þess leystir út með skemmtilegri gjöf. Fyrir systkinin verður boðið upp á skotkeppni og ýmsa afþreyingu í matsal. Á morgun verða svo fyrstu myndirnar settar inn af undirbúningi mótsins og yfir helgina munu koma inn liðsmyndir og myndir af svæðinu sem forráðamenn geta sótt í góðri upplausn.  

 

 

 

7 flokkur pdf

8 flokkur pdf

 

 

Frétt 15.8 Þátttakendur 1200 talsins

 

Um 1200 krakkar munu taka þátt í Arion banka mótinu í fótbolta sem haldið verður í Víkinni núna um helgina. Mótaplanið verður birt hér á síðunni á morgun svo fylgist vel með.

Sælutíð í Andabæ

 

Arion banka mótið fyrir krakka í 7. og 8. flokki í knattspyrnu verður haldið helgina 18. og 19. ágúst næstkomandi. Er þetta í annað sinn sem mótið er haldið en mikil stemning og ánægja ríkti í sólskininu í Víkinni, félagssvæði Víkings, þar sem mótið fór fram í fyrra.

Árið 2011 voru þátttakendur á mótinu um 850 talsins og með hverjum þeirra fylgdi foreldri eða foreldrar og jafnvel fleiri aðstandendur. Fjöldinn sem kom í Víkina var því um eða yfir 2.000 manns og vonumst við til þess að enn fleiri sæki mótið í ár. Yngstu iðkendurnir voru fjögurra ára en þeir elstu átta ára. Margir voru að keppa í fyrsta sinn og að leikjum loknum fengu allir að standa á verðlaunapalli með medalíur á brjóstinu. Allir voru sigurvegarar dagsins og sælusvipurinn gaf ekkert eftir því sem gerist á verðlaunapöllum Ólympíuleika!

Líkt og í fyrra verða þátttakendur leystir út með gjöfum og veislumat í útibúi Grillhússins í Víkinni.

Arion banki stendur að mótinu ásamt knattspyrnudeild Víkings og Eddu útgáfu, sendiráði Andabæjar á Íslandi. 

Nánari upplýsingar veitir Ólafur Ólafsson íþróttastjóri Víkings í síma 519 7602 netfang  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Helstu styrktaraðilar

tvglogo
ImageProxy

iskoli

Póstlistaskráning

Nafn:
Sími:
Netfang:
Kyn:
left direction
right direction