fristundakortimage002

Sumarnámskeið

Knattspyrnuskóli Víkings sumar 2013

Knattspyrnuskóli Víkings er fyrir krakka á aldrinum 5-13. Námskeiðin eru ýmist kl. 9-12 eða kl. 9-16. Boðið er upp á gæslu frá kl. 8-9 og frá 16-17  og er það innifalið í gjaldinu.
Hópnum er skipt upp eftir aldri og þannig reynt að koma til móts við þarfir hvers hóps fyrir sig. Eftir hádegi verður farið í hjólaferðir,ratleiki og margt fleira.
Kennarar við skólann eru íþróttakennarar að mennt og/eða reyndir og sérmenntaðir í sinni íþrótt.

Námskeið 1.    10.  júní – 21. júní/Tvær vikur 
Námskeið 2.    24. júní – 5. júlí /Tvær vikur
Námskeið 3.      8. júlí – 19. júlí /Tvær vikur
Námskeið 4.     22. júlí – 26. júlí /Ein vika

Verð: (miðast við tveggja vikna námskeið)
Heill dagur - 16.000 kr.
Hálfur dagur - 10.000 kr.
Heill dagur með knattspyrnuæfingum - 14.000 kr.
Veittur verður 10% systkinaafsláttur.
Vikunámskeiðin eru helmingi ódýrari.
Krakkarnir verða að koma með nesti í skólann og það er einn kaffitími fyrir og eftir hádegi og svo hádegishlé. Muna að klæða börnin eftir veðri.Ef veður er vont þá fara yngstu krakkarnir inn í íþróttasal. Skráning fer fram á netinu með þvi að smella á skráning.

 

Nauðsynlegt er að nýskrá sig inn í kerfið til að geta klárað skráningu þeir sem vilja klára greiðslu með kreditkorti geta gert það hér á netinu.

Einnig er hægt að millifæra á reikning aðalstjórnar  Banki 0130-05-7995

kt. 700269-0789 

Muna að senda skýringu á  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.


Skráningar fara fram á www.vikingur.felog.is 


Handboltanámskeið Víkings.

Vikuna 12.-16. ágúst verður handboltanámskeið Víkings.

Börn fædd 2002-2007 (8,7,6 flokkur)
Námskeiðið er frá kl. 9-12..
Boðið er upp á gæslu frá kl. 8-9 og  er það innifalið í gjaldinu.
Verð kr. 4,500.-.
Börn  fædd 1998-2001 (5. og 4. flokkur)  
Námskeiðið er frá kl. 13:00 -15:00
Verð kr. 5,000
Þátttakendum verður skipt í hópa eftir aldri og unnið verður í undirstöðuatriðum handboltans.
Kennarar verða  þjálfarar yngri flokka Víkings.
 
Skráningar fara fram á www.vikingur.felog.is   þar er einnig hægt að ganga frá greiðslu með kreditkorti en einnig er hægt að millifæra á reikning aðalstjórnar Banki 0130-05-7995

kt. 700269-0789 

Muna að senda skýringu á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Nánari upplýsingar veitir Ólafur Ólafsson íþróttastjóri Víkings. Netfang Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða í síma 581 3245

Borðtennisnámskeið

Íþrótta- og sumarskóli Borðtennisdeildar Víkings verður starfræktur í sumar í TBR – Íþróttahúsinu (borðtennissalur), Gnoðarvogi 1, 104 Reykjavík fyrir 7-14 ára börn og unglinga.

 

Fjölbreytt Íþróttakennsla er á dagskrá með áherslu á borðtennis. Leiðbeinendur starfa með börnunum að skipulagningu leikja og ýmis konar starfs á útivistarsvæðum í Laugardalnum. Þ.á m verður farið í Fjölskyldu/húsdýragarðinn og sund í hverri viku.

Þátttakendur hafi með sér nesti og verði vel klædd eftir veðri.

Skólastjóri sumarskólans er Daði Freyr Guðmundsson. Íslandsmeistari í 1.deild karla í borðtennis 2013

Skráning á https://vikingur.felog.is Nýskráning –> Borðtennisnámskeið.

Frekari upplýsingar í s. 866-4849 eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Vikunámskeið á aðeins 3000 kr.

Námskeiðin í sumar:

• 1. námskeið: 10 – 14 júní kl. 12:00 - 16:00

• 2. námskeið: 18 - 21 júní kl. 12:00 - 16:00

• 3. námskeið: 24 - 28 júní kl. 12:00 - 16:00

• 4. námskeið: 1- 5 júlí kl. 12:00 - 16:00

• 5. námskeið: 8 – 12 júlí kl. 12:00 -16:00

• 6. námskeið: 15 - 19 júlí kl. 12:00 –16:00

• 7. námskeið: 22 – 26 júlí kl. 12:00 –16:00

 

 

 


 

Helstu styrktaraðilar

tvglogo
ImageProxy

iskoli

Póstlistaskráning

Nafn:
Sími:
Netfang:
Kyn:
left direction
right direction