Æfingagjöld og skráning
Handknattleikur, æfingagjöld og skráning 2012 og 2013
Æfingar í Víkinni hefjast 29 ágúst
Æfingar í Réttarholtsskóla byrja 1 september.
Tekið hefur verið í notkun nýtt og glæsilegt skráningaforrit sem ber nafnið Nóri. Nóri er einfalt skráningaforrit sem er beintengt við Borgun sem auðveldar allar kortagreiðslur. Til þess að gerast notandi þarf forráðamaður að nýskrá sig og fyllir hann þá út allar upplýsingar um sig en símanúmer og netföng berast okkur sem færist sjálfkrafa í gagnagrunn félagsins. Ef netfang eða símanúmer forráðamanns breytist á tímabilinu, þarf hann að breyta því sjálfur inn í Nóra. Nóri - skráningar -og greiðslukerfi
Samkvæmt reglum handknattleiksdeildar Víkings er börnum með ógreidd æfingagjöld ekki heimilt að taka þátt í mótum.
Æfingagjöld fyrir keppnisárið 2012-2013
| Flokkur | Haust | Vor |
| 4. flokkur | kr. 27,500 | kr. 27,500 |
| 5. flokkur | kr. 25,000 | kr. 25,000 |
| 6. flokkur | kr. 22,500 | kr. 22,500 |
| 7. flokkur | kr. 20,000 | kr. 20,000 |
| 8. flokkur | kr. 15,000 | kr. 15,000 |
- Hægt er að dreifa greiðslum í allt að 4 mánuði með Visa eða Euro. Einnig er hægt að millifæra inn á reikning Unglingaráðs, 0130-05-079019 kt. 520804-2420
- Umsjón með skráningu og innheimtu æfingagjalda er í höndum íþróttastjóra og unglingaráðs. Frístundarkort – upplýsingar Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða koma við á skrifstofu Víkings í Víkinni.
















