Nú styttist í Andrésar Andarleikana á Akureyri en þeir verða haldnir 23.-26.apríl. Andrésarleikarnir er stærsta skíðamót ársins og eru fyrir 6-15 ára skíðakrakka (fædd 1998-2007).
Leikarnir hefjast á skrúðgöngu kl.20 á miðvikudeginum og það má enginn missa af skrúðgöngunni sem er frá Lundarskóla að íþróttahöllinni. Keppnin sjálf fer svo fram á fimmtudag, föstudag og laugardag.
Það er aðdáunarvert hversu duglegir krakkarnir í skíðadeildinni eru að æfa við alls konar veðurskilyrði í Bláfjöllum.
Vegna veðurs er Víkingsleikum 9 ára og yngri frestað til morguns, sunnudags.
Í dag hefst skíðakeppnin í Topolino þar sem Víkingurinn Georg Fannar Þórðarson keppir í svigi og stórsvigi ásamt níu íslenskum ungmennum.
Vegna veðurs í Bláfjöllum þarf því miður að fresta Víkingsleikum 9 ára og yngri um óákveðinn tíma
Á laugardag (8.mars) verða haldnir Víkingsleikar fyrir 9 ára og yngri í Bláfjöllum.
Dagskrá mótsins: